Sevilla 0 - 0 Betis
Sevilla og Real Betis gerðu markalaust jafntefli í borgarslagnum í La Liga í kvöld.
Betis byrjaði leikinn af miklum krafti en það var síðan Sevilla sem tók yfir í síðari hálfleik.
Liðið skapaði sér urmul af góðum færum. Erik Lamela fékk tvö góð færi og fyrra algjört dauðafæri er hann skallaði framhjá markinu.
Juan MIranda, bakvörður Betis, var rekinn af velli undir lok leiks en Sevilla náði ekki að nýta sér liðsmuninn og lokatölur 0-0. Betis er í 6. sæti með 56 stig en Sevilla með 48 stig í 9. sæti.
Athugasemdir