Mikkelsen klúðraði víti í fyrri hálfleik en fór aftur á punktinn í seinni hálfleiknum og skoraði þá.
Breiðablik fékk þrjú dýrmæt stig í Pepsi Max-deild karla í kvöld er liðið mætti Gróttu á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi.
Breiðablik gat lyft sér upp í annað sæti með sigri en þurfti jafntframt að treysta á að Stjarnan myndi tapa stigum gegn Fylki á sama tíma.
Blikar fengu kjörið tækifæri til að komast yfir á 26. mínútu í kvöld er hinn danski Thomas Mikkelsen steig á vítapunktinn. Ástbjörn Þórðarson var dæmdur brotlegur innan teigs eftir hornspyrnu. Hákon Rafn Valdimarsson í marki Gróttu sá hins vegar við Mikkelsen og tókst að verja spyrnuna og staðan enn markalaus.
Tíu mínútum síðar dró aftur til tíðinda er Kristófer Melsted fékk að líta beint rautt spjald hjá Gróttu fyrir að brjóta sem aftasti maður á Gísla Eyjólfssyni.
„Ég veit ekki hvað skal segja... Rosalega erfitt að sjá hvort Kristófer hafi verið aftasti maður eða hvort Ástbjörn hafi verið aftastur sem var í línu við brotið," segir Anton Freyr Jónsson í beinni textalýsingu um ákvörðunina.
Staðan var markalaus í hálfleik en fyrsta mark leiksins kom á 73. mínútu er Blikar fengu annað víti. Mikkelsen steig aftur á punktinn og skoraði í þetta skipti af miklu öryggi.
Fleiri urðu mörkin ekki og fengu Blikar þrjú mikilvæg stig og eru nú tveimur stigum á eftir Val sem er í toppsætinu með 22 stig.
Á sama tíma áttust við Fylkir og Stjarnan en leikið var á Fylkisvelli í Árbænum. Stjarnan gat með sigri minnkað forskot Vals niður í eitt stig.
Stjörnumenn byrjuðu betur og komust yfir á 37. mínútu er markavélin Hilmar Árni Halldórsson kom boltanum í netið eftir sendingu frá Halldóri Orra Björnssyni.
Eftir hæga byrjun tók Stjarnan yfir leikinn í Árbænum og má segja að markið hafi legið í loftinu á þessum tíma.
Stjarnan leiddi í hálfleik en Fylkismenn komu sprækir til leiks í seinni 45 mínúturnar og tókst að jafna þegar 73 mínútur voru komnar á klukkuna. Ásgeir Eyþórsson skoraði þá fyrir heimamenn en hann stangaði boltann inn eftir hornspyrnu frá Daða Ólafssyni og staðan orðin 1-1.
Lokamínúturnar voru spennandi en fleiri urðu mörkin ekki og lokastaðan 1-1. Stjarnan er í þriðja sætinu með 19 stig, þremur stigum á eftir Val. Fylkismenn sitja um miðja deild í sjötta sæti með 16 stig.
Grótta 0 - 1 Breiðablik
0-0 Thomas Mikkelsen ('26 , misnotað víti)
0-1 Thomas Mikkelsen ('73 , víti)
Rautt spjald: Kristófer Melsted, Grótta ('36)
Lestu nánar um leikinn hér
Fylkir 1 - 1 Stjarnan
0-1 Hilmar Árni Halldórsson ('37 )
1-1 Ásgeir Eyþórsson ('77 )
Lestu nánar um leikinn hér
Athugasemdir




