Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   fim 21. september 2023 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Gott fyrir hana að komast í annað lið ef hún fær að spila"
Svava Rós Guðmundsdóttir.
Svava Rós Guðmundsdóttir.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Það var í gær tilkynnt að landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir væri búin að skipta yfir til Benfica í Portúgal frá Gotham FC í Bandaríkjunum.

Svava, sem er 27 ára gömul, gekk í raðir Gotham FC í Bandaríkjunum í byrjun ársins eftir að hafa gert góða hluti með Brann í Noregi.

Hún hefur ekkert fengið að spila með Gotham að undanförnu og er núna farin frá félaginu til Benfica sem er ríkjandi meistari í Portúgal. Svava kemur örugglega til með að fylla að einhverju leyti í skarðið sem Cloe Lacasse skilur eftir sig en hún fór til Arsenal.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, var spurður út í félagaskipti Svövu á fréttamannafundi í dag.

„Það er gott fyrir hana að komast í annað lið ef hún fær að spila. Um það snýst um þetta fyrir mér, að leikmenn séu að spila með sínum félagsliðum," sagði Steini.

Svava var í viðtali við Fótbolta.net á dögunum þar sem hún var spurð út í stöðu sína hjá Gotham. Hún sagðist ekki hafa fengið neina útskýringu á því af hverju hún væri ekki að spila.

„Þetta byrjaði mjög vel en svo er þetta aðeins búið að dala. Ég hef ekkert fengið að spila. Þetta er búið að vera upp og niður. Eina sem ég fékk var 'þetta er erfitt, en svona er þetta bara'. Maður vill alltaf spila og sýna í hvað manni býr. Ég væri alveg til í að fá einhverja almennilega útskýringu," sagði Svava.
Athugasemdir
banner
banner
banner