Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. maí 2023 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Ákvörðun Napoli verður tilkynnt á næstu dögum
Mynd: EPA
Luciano Spalletti, þjálfari Napoli, gaf það í skyn að hann sé á förum frá félaginu í sumar.

Spalletti gerði Napoli að meisturum í fyrsta sinn í 33 ár en hann fékk ekki nýtt samningstilboð frá félaginu.

Ítalskir miðlar hafa fullyrt það að þetta sé síðasta tímabil hans með liðið og virðist hann svo gott sem staðfesta það.

Eftir 3-1 sigurinn á Inter sagði hann að það væri búið að taka ákvörðun varðandi framhaldið.

„Það er búið að taka ákvörðun. Við erum að bíða með að tilkynna það,“ sagði Spalletti.

Rafael Benítez þykir líklegastur til að taka við starfinu af Spalletti.
Athugasemdir
banner
banner
banner