Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. maí 2023 18:23
Matthías Freyr Matthíasson
Byrjunarlið Fram og KR: Þórir Guðjónsson byrjar fyrir Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 19:15 hefst viðureign Fram og KR í áttundu umferð Bestu deildar karla. Fyrir leiki kvöldsins er Fram í sjöunda sæti deildarinnar og KR í því tólfta.


Jón Sveinsson gerir tvær breytingar á liði sínu eftir tapið á móti Fylki í síðustu umferð. Orri Sigurjónsson fer á bekkinn og Albert Hafsteinsson er utan hóps en hann fór meiddur af velli í síðasta leik. Þórir Guðjónsson og Delphin Tshiembe koma inn í liðið.

Lestu um leikinn: Fram 0 - 0 KR

Rúnar Kristinsson gerir einnig tvær breytingar eftir sigur á móti Fylki í Mjólkurbikarnum. Sigurður Bjartur og Kristinn Jónsson koma inn. Aron Þórður Albertsson og Kristján Flóki fara á bekkinn en Flóki fór af velli í síðasta leik vegna höfuðhöggs.

Byrjunarlið Fram

1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)

5. Delphin Tshiembe

6. Tryggvi Snær Geirsson

7. Aron Jóhannsson

9. Þórir Guðjónsson

10. Fred Saraiva

17. Adam Örn Arnarson

23. Már Ægisson

28. Tiago Fernandes

69. Brynjar Gauti Guðjónsson

77. Guðmundur Magnússon

Byrjunarlið KR

1. Simen Lillevik Kjellevold (m)

4. Jóhannes Kristinn Bjarnason

5. Jakob Franz Pálsson

7. Finnur Tómas Pálmason

8. Olav Öby

11. Kennie Chopart (f)

14. Ægir Jarl Jónasson

16. Theodór Elmar Bjarnason

19. Kristinn Jónsson

23. Atli Sigurjónsson

33. Sigurður Bjartur Hallsson


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner