Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   sun 22. ágúst 2021 21:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimir léttur undir lokin: Manni líður strax miklu betur
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals ræðir við Vilhjálm Alvar fjórða dómara í kvöld.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals ræðir við Vilhjálm Alvar fjórða dómara í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það eru alltaf vonbrigði að tapa," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, eftir tap gegn Víkingi í toppbaráttuslag í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 Valur

„Það var eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik. Við vorum undir í öllum grunnatriðum leiksins. Við vorum í hálfgerðum feluleik og vildum ekkert fá boltann. Við náðum að sleppa með 2-0 inn í hálfleik. Seinni hálfleikur var betri."

Lokatölur 2-1 fyrir Víkinga sem eru í öðru sæti með 36 stig. Valsmenn eru áfram á toppnum á markatölu.

„Við þurfum að fara yfir það af hverju við mættum svo illa stemmdir í þennan leik, og vera klárir í næsta leik."

Heimir var léttur að lokum þegar honum var tjáð að Valur væri á toppnum á markatölu, þökk sé marki sem þeir skoruðu undir lokin. „Manni líður strax miklu betur," sagði Heimir og glotti.

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner