Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. maí 2023 14:24
Elvar Geir Magnússon
AC Milan sagt hafa augastað á Alberti
Mynd: Getty Images
Primocanale segir að ítalska stórliðið AC Milan hafi áhuga á Alberti Guðmundssyni, leikmanni Genoa. Fleiri ítalskir fjölmiðlar hafa tekið upp fréttina.

Sagt er að Sassuolo hafi einnig augastað á þessum 25 ára íslenska landsliðsmanni sem skoraði ellefu mörk í 36 leikjum fyrir Genoa í ítölsku B-deildinni á nýliðnu tímabili.

Genoa hafnaði í öðru sæti og vann sér inn sæti í ítölsku A-deildinni að nýju en liðið féll í fyrra.

Albert var ekki í landsliðshópnum í síðasta glugga þar sem hann var úti í kuldanum hjá Arnari Þór Viðarssyni. Nýr landsliðsþjálfari, Age Hareide, hefur hinsvegar sagt að Albert verði í hópnum hjá sér.

Langafi Alberts og alnafni lék á sínum tíma með AC Milan.


Athugasemdir
banner
banner
banner