Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 23. maí 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Burn: Trúi því ekki að við komumst í Meistaradeildina
Mynd: EPA

Newcastle spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en það varð ljóst eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Leicester í gær.


Liðið var með gríðarlega yfirburði í leiknum en á einhvern ótrúlegan hátt vildi boltinn ekki inn. Liðið þurfti stig til að tryggja sætið í Meistaradeildinni en Leicester var nálægt því að stela sigrinum í lokin en Nick Pope var vel á verði.

Dan Burn var í viðtali hjá NUTV eftir leikinn og var í skýjunum með tímabilið.

„Þetta er klikkun, ég trúi því ekki að við komumst í Meistaradeildina. Þetta var svolítið stressandi í lokin en við höfum verið frábærir allt tímabilið, áttum þetta svo sannarlega skilið. Það var frábært að gera þetta fyrir framan stuðningsmennina," sagði Burn.


Athugasemdir
banner
banner
banner