
Fimmta umferð Bestu deildar kvenna hófst í gær með þremur leikjum en Valur er komið á toppinn eftir úrslit gærkvöldsins.
Þór/KA hóf umferðina á toppnum en getur fallið niður í 4. sæti á morgun eftir leik Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli fari svo að heimakonur vinni. Leikur Blika og FH átti að fara fram í kvöld en honum hefur verið frestað til morguns.
Nýliðar FH hófu tímabilið á tveimur töpum en unnu sinn fyrsta leik í síðustu umferð gegn Keflavík.
Það verður þó leikur í Kópavogi í kvöld en þá mætast HK og Fylkir í Lengjudeild kvenna í Kórnum. Liðin eru í 2. og 3. sæti með sjö stig eftir þrjár umferðir.
Besta-deild kvenna
19:15 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
Lengjudeild kvenna
19:15 HK-Fylkir (Kórinn)
2. deild kvenna
19:15 Haukar-Smári (Ásvellir)

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |