Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. maí 2023 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho ósáttur: Fyrir mér er þetta brandari
Mynd: Getty Images

Jose Mourinho stjóri Roma er allt annað en sáttur með það að 10 stig voru dregin af Juventus í gær.


Juventus fékk að vita það að stigin yrðu dregin af þeim örfáum mínútum fyrir leik gegn Empoli sem liðið tapaði á endanum 4-1 og er því dottið úr 2. sæti niður í 7. sæti og er fimm stigum frá Meistaradeildarsæti þegar tvær umferðir eru eftir.

Roma er í 6. sæti stigi á undan Juventus og eru því liðin skyndilega farin að berjast gegn hvort öðru um Evrópusæti.

.,Fyrir mér er þetta brandari, að vita þetta þegar tveir leikir eru eftir er skrítið fyrir alla, jafnvel Juventus. Ef þú hefðir sagt mér þetta fyrir leikinn okkar gegn Monza eða Bologna hefðum við farið öðruvísi inn í þá leiki, við hefðum þurft að gera allt til að komast í Evrópudeildina," sagði Mourinho.

„Ég vorkenni Allegri og leikmönnum liðsins því þeir hafa unnið fyrir stigunum á vellinum en sannleikurinn er sá að deildin er í hættu. Ég vil ekki ræða þetta frekar, ég vorkenni þeim þar sem þeir eru atvinnumenn."


Athugasemdir
banner
banner
banner