Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
„Hætt að borða nammi í Tenerife ferðinni þegar hún var tíu ára"
GunnInga í bláa hafinu: Styðjum liðið okkar í blíðu og stríðu
„Eru geggjaðir karakterar og munu bíta fast frá sér“
Tólfan spáir sigri - „Hef bara séð eina Noregstreyju“
Fékk leyfi til að fljúga beint frá Albaníu til Sviss
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
   lau 24. mars 2018 05:26
Elvar Geir Magnússon
Santa Clara
Björn Bergmann: Fannst þeir heppnir með þessi mörk
Icelandair
Björn Bergmann í leiknum í nótt.
Björn Bergmann í leiknum í nótt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta frekar ósanngjarnt, við vorum inni í leiknum allan leikinn og mér fannst þeir heppnir með þessi mörk," sagði Björn Bergmann Sigurðarson framherji Íslands eftir 3-0 tap gegn Mexíkó í Santa Clara í kvöld en eftir að hafa komist í 2-0 bætti Mexíkó við þriðja markinu í lokin, eitthvað sem leit út fyrir að eiga að vera fyrirgjöf.

Lestu um leikinn: Mexíkó 3 -  0 Ísland

„Ég veit ekki hvort hann var að reyna þetta þriðja eða ekki. Þetta var svolítið leiðinlegt en við vorum solid allan leikinn og áttum tækifæri á að skora og áttum að skora allavega eitt eða tvö mörk."

Þetta er fyrri leikur Íslands í æfingaferðinni í Bandaríkjunum en liðið mætir Perú í New Jersy á þriðjudaginn. Björn er ánægður með verkefnið.

„Þetta er bara til að fá okkur saman og venjast hvorum öðrum. Það er gott fyrir allan hópinn að fá svona gott lið í æfingaleik," sagði hann en við spurðum hann í lokin hvort hann hafi verið sáttur með eigin frammistöðu.

„Já, mér fannst ég standa mig ágætlega. Vann flesta skallabolta og náði að gera það sem ég vildi gera. Mann langar alltaf að komast í færi og ná að skora en ég barðist allavega nóg fannst mér."
Athugasemdir