Norðmaðurinn Thomas Syversen er um 105 þúsund íslenskum krónum ríkari eftir að hafa veðjað á að Luis Suarez myndi bíta andstæðing í leik Úrúgvæ og Ítalíu í dag.
Eins og allir vita beit Suarez í Giorgio Chiellini, varnarmann Ítalíu en stuðullinn sem var gefinn var 175-1.
Eins og allir vita beit Suarez í Giorgio Chiellini, varnarmann Ítalíu en stuðullinn sem var gefinn var 175-1.
„Þetta er það klikkaðasta sem ég hef veðjað á og það er enn klikkaðra að ég vann. Ég var mjög ánægður með þetta bit hjá Suarez," sagði hinn 23 ára Syversen.
Kærasta hans heldur upp á afmæli sitt um helgina og hyggst hann nota gróðann í að kaupa gjöf handa henni.
Fréttir af biti Suarez:
FIFA byrjað að skoða málið
Aron Einar: Suarez virðist ekki ætla að læra
Chiellini: Suarez kemst upp með að vera naðra
Myndband með öllum bitum Suarez
Myndaveisla af Suarez að bíta andstæðing
Viðbrögð af Twitter
Frétt um atvikið
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.


