Annað kvöld mætir Óskar Hrafn Þorvaldsson syni sínum Orra Steini í Meistaradeildinni. Óskar er þjálfari Breiðabliks og Orri er sóknarmaður FC Kaupmannahafnar.
Óskar var til viðtals í dag og var hann spurður hvernig samskiptin væru þeirra á milli í aðdraganda leiksins.
Óskar var til viðtals í dag og var hann spurður hvernig samskiptin væru þeirra á milli í aðdraganda leiksins.
„Samskiptin eru eins eðlileg og þau geta orðið. Við auðvitað ræðum ekkert þennan leik. Ég er ekki að fara segja honum planið okkar og hann er ekki að fara segja mér planið þeirra," sagði Óskar.
„En fyrst og fremst hlakka ég til að sjá hann, við sjáumst alltof sjaldan enda eitt haf á milli okkar. Ég hlakka til að sjá hann á morgun."
Vorkennir móðurinni meira
Í viðtali við mbl.is eftir leikinn gegn ÍBV á föstudag var Óskar einnig spurður út í Orra.
„Auðvitað er fótboltinn þannig að þú ræður ekki hverjum þú mætir og hverjir eru í liði mótherjanna. Það er ekki draumaverkefnið að mæta syninum. Ég vorkenni móður hans, Laufeyju konunni minni, meira. Hún þarf að sitja upp í stúku og halda með báðum liðum. Það má ekki gera þetta að einvígi míns og hans. Hvorugur okkar er í aðalhlutverki," sagði Óskar.
Orri er átján ára og gekk í raðir FCK frá Gróttu eftir tímabilið 2019. Hann er U21 landsliðsmaður sem á að baki fjóra leiki í efstu deild í Danmörku og tvo í Meistaradeildinni. Hann var ónotaður varamaður þegar FCK vann Lyngby í 1. umferð dönsku deildarinnar á laugardag.
Leikurinn á morgun hefst klukkan 19:15 annað kvöld og fer leikurinn fram á Kópavogsvelli. Liðin mætast svo á Parken í seinni leiknum eftir átta daga.
Athugasemdir