Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
Leiðin úr Lengjunni - ÍR á toppinn og ekkert gengur upp í Árbænum
Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar
Turnar Segja Sögur - Írland frá Jackie Charlton til Heimis Hallgríms
Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM
Leiðin úr Lengjunni - Leiknismenn rifu í gikkinn og afgerandi úrslit
Innkastið - Umdeild atvik og Íslandsmeistararnir vakna
Neðri deildir lengst uppi!
Tveggja Turna Tal - Þorkell Máni Pétursson
Freysi á heimavelli - Hvernig er líf íslenska þjálfarans í Bergen?
Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Grasrótin - 4. umferð, Baldvin Borgars í mánaðarfrí
Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska !
Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna
Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska!
Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn
Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir
Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield
Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson
Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir
   sun 25. maí 2014 12:00
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Sveinn Elías: Deildin jafnari en oft áður
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hringdi norður yfir heiðar og heyrði hljóðið í Sveini Elíasi Jónssyni, fyrirliða Þórs, eftir 5-2 sigur liðsins á Fylki en Árbæingar létu skapið hlaupa með sig í gönur í leiknum. „Það er ábyggilega ekkert gaman að tapa 5-1 í hálfleik fyrir stigalausu liði. Var þetta ekki bara út af því að Gunnar Jarl er Leiknismaður?“

„Þetta var rosalega þægilegt. Það er mjög óhentugt að fara langt inn í mótið með núll stig. Við eldri leikmennirnir, sem höfum spilað hér fleiri tímabil en tvö, vissum að það byggi svo miklu meira í liðinu. Við tókum leikmannafund þar sem við fórum yfir að við nenntum þessu ekki lengur og loksins kom leikur þar sem við byrjuðum á fullu.“

Varnarleikur reyndist akkílesarhæll Þórs í fyrra en á undirbúningstímabilinu virtist sem hann væri kominn á rétt ról. Í upphafsleikjum tímabilsins hefur Sandor Matus þó oftast allra markvarða þurft að sækja boltann í netið, alls tólf sinnum í fimm leikjum.

„Ég kann ekki alveg skýringar á þessu. Til dæmis hefðum við getað fengið átta mörk á okkur á móti Fjölni ef Sandor hefði ekki átt besta leik lífs síns þann daginn. Við vorum búnir að spila mikið á sömu varnarlínunni sem hafði ekki gefið mörg færi á sér og áttum ekki von á þessu. Við verðum bara að halda áfram að vinna í vörninni.“

Næstu leikir liðsins í deildinni eru gegn lánlausu liði ÍBV og nýliðum Víkings. Sveinn gefur þó lítið fyrir að það verði auðvelt að ná í punkta í þeim leikjum.

„Við fengum Keflavík, Fram og Fjölni snemma tímabilsins og maður hélt fyrirfram að það yrði gaman að horfa á töfluna eftir þá leiki en þegar upp var staðið þá var það ekki þannig. Það eru allir að reita stig af öllum og deildin er miklu jafnari núna en oft áður.“

Viðtalið má heyra hér í spilaranum fyrir ofan.
Athugasemdir
banner