Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 25. maí 2021 21:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar: Ég hefði orðið brjálaður sjálfur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, ræddi við Egil Sigfússon, fréttaritara Fótbolta.net, eftir leikinn gegn Fylki.

„Mér fannst spilamennskan mjög léleg, ekkert flóknara en það. Við vorum eitthvað stressaðir og ekki að höndla stöðuna að spila leik upp á toppsætið. Það voru óþarfa mikið af feilum og þeir komust í 1-0 með einhverju skrautlegu marki. Fylkir stóð sig mjög vel og mér fannst við ekki eiga skilið að vinna þennan leik," saði Arnar.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  2 Fylkir

Fylkismenn voru mjög ósáttir þegar Víkingar komust í 2-1. Dagur Dan Þórhallsson var utan vallar vegna höfuðhöggs og vildu Fylkismenn gera skiptingu en fengu það ekki í gegn.

„Ég hefði orðið brjálaður sjálfur. Mér fannst bæði lið fá tækifæri til að sparka boltanum út af. Ég held að það sé ekki okkar að gera það og ekki Fylkismanna heldur. Boltinn var lengi í gangi, þeirra leikmaður komst ekki inn á. Menn eðlilega pirraðir og sýndu það," sagði Arnar.

Víkingur er með fjórtán stig eftir sex umferðir. Nánar var rætt við Arnar og má sjá það í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner