„Þetta er mikið högg í magann,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 1-2 liðsins gegn Þór/KA fyrr í dag. „Við byrjum leikinn illa, sem er mjög ólíkt okkur. Það hefur verið styrkleiki liðsins í síðustu leikjum, að byrja vel. “
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 Þór/KA
Spurður um gang leiksins sagði hann „Mér fannst 1-1 í hálfleik bara vel sloppið. Við fórum yfir í hálfleik hvernig við ætluðum að koma til baka og mér fannst við gera það en nýttum því miður ekki færin. “
Spurðu hvort leikmenn hans hefðu verið of meðvitaðir um að þeir væru að spila sex stiga leik sagði hann „Ég hugsa að það sé rétt hjá þér. Þetta sýnir bara hvað andlegi þátturinn skiptir miklu máli. Þegar við erum komin á þetta stig keppninar, þetta seint, þá skiptir hausinn öllu og við töpuðum þar í dag. “
Athugasemdir