fim 26. nóvember 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Evrópudeildin í dag - Rúnar með Arsenal í Noregi
Rúnar gæti byrjað í markinu hjá Arsenal.
Rúnar gæti byrjað í markinu hjá Arsenal.
Mynd: Getty Images
Albert og félagar í AZ eiga erfiðan leik fyrir höndum gegn Real Sociedad.
Albert og félagar í AZ eiga erfiðan leik fyrir höndum gegn Real Sociedad.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórða umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar verður leikin í heild sinni í kvöld.

Það er spurning hvort Rúnar Alex Rúnarsson verði í markinu hjá Arsenal er liðið heimsækir Molde í Noregi. Arsenal hefur unnið alla leiki sína í riðlinum til þessa.

Það eru þrjú önnur Íslendingalið í baráttunni í kvöld. Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon leika með CSKA Moskvu gegn Feyenoord, Sverrir Ingi Ingason heimsækir PSV í Hollandi með liði sínu PAOK og Albert Guðmundsson verður í eldlínunni með AZ Alkmaar gegn Real Sociedad.

Öll liðin eiga enn möguleika á að fara áfram. Arsenal er með fullt hús stiga og í mjög góðri stöðu, AZ er á toppnum í sínum riðli með sex stig, PAOK er í öðru sæti í sínum riðli með fimm stig og CSKA er á botninum í sínum riðli með tvö stig, en aðeins tveimur stigum frá öðru sætinu.

Tottenham á í kvöld heimaleik gegn Ludogorets frá Búlgaríu. Tottenham er með sex stig í sínum riðli, eins og Antwerp og LASK. Ludogorets er án stiga.

fimmtudagur 26. nóvember

EUROPA LEAGUE: Group B
17:55 Molde - Arsenal (Stöð 2 Sport 2)
20:00 Dundalk - Rapid

EUROPA LEAGUE: Group A
17:55 CSKA Sofia - Young Boys
20:00 Cluj - Roma

EUROPA LEAGUE: Group C
20:00 Leverkusen - Hapoel Beer Sheva
20:00 Nice - Slavia Prag

EUROPA LEAGUE: Group D
20:00 Standard - Lech
20:00 Rangers - Benfica

EUROPA LEAGUE: Group E
20:00 Granada CF - Omonia
20:00 PSV - PAOK

EUROPA LEAGUE: Group F
20:00 Napoli - Rijeka
20:00 AZ - Real Sociedad (Stöð 2 Sport)

EUROPA LEAGUE: Group G
17:55 Braga - Leicester
17:55 AEK - Zorya

EUROPA LEAGUE: Group H
17:55 Lille - Milan
17:55 Sparta Prag - Celtic

EUROPA LEAGUE: Group I
17:55 Maccabi Tel Aviv - Villarreal
17:55 Qarabag - Demir Grup Sivasspor

EUROPA LEAGUE: Group J
17:55 LASK Linz - Antwerp
20:00 Tottenham - Ludogorets (Stöð 2 Sport 2)

EUROPA LEAGUE: Group K
17:55 Wolfsberger AC - Dinamo Zagreb
17:55 CSKA - Feyenoord (Stöð 2 Sport)

EUROPA LEAGUE: Group L
17:55 Gent - Rauða stjarnan
17:55 Liberec - Hoffenheim
Athugasemdir
banner
banner
banner