Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. nóvember 2020 22:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gattuso: Vona að Maradona heilsi systur minni þarna uppi
Diego Maradona, kóngurinn í Napoli
Diego Maradona, kóngurinn í Napoli
Mynd: Getty Images
Napoli lék í kvöld gegn Rijeka í Evrópudeildinni. Napoli vann 2-0 sigur á króatíska liðinu.

Fyrir leik var Diego Armando Maradona minnst með blysum fyrir utan heimavöllinn. Maradona lést í gær en hann er mesta goðsögn í sögu Napoli fyrir tíma sinn þar sem leikmaður liðsins.

Gennaro Gattuso, fyrrum leikmaður AC Milan og nú þjálfari Napoli, var spurður út í Maradona eftir leikinn í kvöld.

„Diego kom frá annarri plánetu og hann mun lifa að eilífu eins og allar goðsagnir. Ég vona að hann heilsi systur minni þarna uppi."

„Ég veit ekki hvort San Gennaro eða Maradona er mikilvægari fyrir þessa borg, með fullri virðingu fyrir dýrlingnum (San Gennaro)."

Athugasemdir
banner
banner