Ekki auðvelt að yfirgefa Keflavík
Ástbjörn Þórðarson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við FH en hann kemur frá Keflavík þar sem hann spilaði í fyrra. Hann er uppalinn í KR og er því kominn aftur í hvítt og svart.
„Mér líst mjög vel á þetta og er mjög spenntur. Þetta er aðeins öðruvísi hvítt og svart en er bara flott," sagði Ástbjörn.
„Mér líst mjög vel á þetta og er mjög spenntur. Þetta er aðeins öðruvísi hvítt og svart en er bara flott," sagði Ástbjörn.
„Þetta eru alltaf blendnar tilfinningar. Ég var áhugasamur þegar ég heyrði fyrst af áhuga FH og lét Keflavík vita af því. Á sama tíma var ég í liði sem gaf mér séns og ég hafði kynnst mjög skemmtilegu fólki í kringum Keflavíkurliðið. Það var ekki auðvelt að yfirgefa það."
Í draumaheimi hefðiru viljað taka eitt tímabil í viðbót í Keflavík?
„Ef það hefði orðið staðan þá hefði ég verið neitt pirraður eða slíkt. Ég lít á FH sem skref upp á við, það var það sem mig langaði og metnaður minn er alltaf að komast lengra. Þetta var rétta skrefið fyrir mig"
„Ég er ánægður að Keflavík hafi sagt já við FH, spenntur fyrir því að vera kominn hingað og ætla gera mitt allra besta til að standa mig og koma þessu félagi á þann stað sem það á að vera á."
Telur þú að FH sé með hóp í að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í sumar?
„Mér finnst það, ég held að FH sé þannig félag að það reynir alltaf að berjast um titla."
Hann sagði í lok viðtalsins að hægri bakvörðurinn sé sín besta staða.
Athugasemdir