„Við vissum að þetta yrði þolinmæðisvinna. Þetta var eins og við vildum, vinna þægilegan sigur og fá engin spjöld," sagði Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, eftir 3-0 sigur gegn utandeildarliði Ármanns í bikarnum í kvöld.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 3 - 0 Ármann
Ármannsliðið barðist vel þó margir leikmenn liðsins séu ekki í sínu besta formi.
„Þeir klára úr ísskápnum sínum nokkrir þarna en þeir eru duglegir. Það er andi í þessu. Við erum stórt lið gegn Hjörleifi og það er erfitt að spila svona leiki. Þeir eru með stemninguna með sér."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















