Xabi Alonso er sagður halda reglulegu sambandi við fyrrum leikmann sinn hjá Real Madrid, Arda Guler, á sama tíma og hann undirbýr fyrstu leikmannakaup sín sem stjóri Chelsea.
Alonso tók nýlega við Chelsea, skrifaði undir fjögurra ára samning og er talinn ætla að taka beinni og kröftugri stjórn á leikmannamálum félagsins en forverar hans.
Alonso tók nýlega við Chelsea, skrifaði undir fjögurra ára samning og er talinn ætla að taka beinni og kröftugri stjórn á leikmannamálum félagsins en forverar hans.
Guler er einn af þeim leikmönnum sem Chelsea horfir til, sérstaklega vegna sambands hans við Alonso en þeir eru nánir.
Tyrkneski landsliðsmaðurinn hefur átt misjafnt gengi hjá Real Madrid frá komu sinni til félagsins, en undir stjórn Alonso á síðustu leiktíð fékk hann mun meira traust og var orðinn fastamaður í liðinu þegar hann var heill heilsu.
Sjálfur hefur leikmaðurinn viðurkennt að samband hans við Alonso hafi verið mjög sterkt en þeir hafa haldið reglulegu sambandi eftir að Alonso var rekinn frá Real Madrid.
Guler er metinn á um 90 milljónir evra en hann er mjög spennandi leikmaður.

