Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fös 30. janúar 2026 17:26
Elvar Geir Magnússon
Rayan gæti byrjað - „Nítján ára og er að taka stórt stökk“
Rayan krotaði undir í vikunni.
Rayan krotaði undir í vikunni.
Mynd: Bournemouth
Hinn nítján ára gamli Rayan gekk í raðir Bournemouth í vikunni. Brasilíumanninum unga er ætlað að fylla skarð Antoine Semenyo sem var seldur til Manchester City fyrr í þessum mánuði.

Rayan skoraði 20 mörk í 57 leikjum fyrir Vasco da Gama og skoraði tvisvar fyrir U20 lið félagsins. Hann er örvfættur sóknarmaður sem getur spilað í öllum sóknarstöðunum.

Bournemouth heimsækir Wolves á morgun og Andoni Iraola, stjóri liðsins, fékk þá spurningu hvort Rayan gæti byrjað leikinn?

„Hann gæti alveg byrjað, það er ákvörðun sem ég þarf að taka. Líkamlegt ástand hans er gott, hann hefur getað æft að fullu," segir Iraola.

„Við þurfum að fara varlega með hann. Hann er 19 ára gamall og er að taka stórt stökk, hann er kominn öðruvísi land. Ég vil að hann sé öruggur og með sjálfstraust."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 27 17 7 3 52 20 +32 58
2 Man City 26 16 5 5 54 24 +30 53
3 Aston Villa 26 15 5 6 37 27 +10 50
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 26 12 6 8 41 35 +6 42
7 Brentford 26 12 4 10 40 35 +5 40
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 26 9 9 8 27 30 -3 36
12 Fulham 26 10 4 12 35 40 -5 34
13 Crystal Palace 26 8 8 10 28 32 -4 32
14 Brighton 26 7 10 9 34 34 0 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 26 7 6 13 25 38 -13 27
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 26 4 6 16 28 51 -23 18
20 Wolves 27 1 7 19 18 50 -32 10
Athugasemdir
banner
banner