,,Þetta var nauðsynlegur sigur ef við ætlum að vera með í þessari baráttu sem eftir er," sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Víkings eftir 3-0 sigur á BÍ/Bolungarvík í dag.
,,Við erum búnir að vera svolítið á hælunum undanfarið en komum sterkir inn í dag. Þeir eiga hrós skilið fyrir það strákarnir."
Önnur úrslit hafa fallið með Víkingum síðustu daga, jafntefli Hauka og Leiknis og sigur Þróttar á Fjölni.
,,Við erum búnir að fá margar líflínur en höfum ekki nýtt þær. Vonandi eru menn að ranka við sér."
,,Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. BÍ var þremur stigum á undan okkur og við náðum að jafna það. Við fengum Aron (Elís Þrándarson) líka inn í liðið og hann hefur svolítið mikið að segja fyrir spilið í liðinu. Hann spilaði rúmar 70 í dag og vonandi batnar það frá leik til leiks."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir























