Willum Þór Þórsson þjálfari Keflavíkur var gríðarlega sáttur við sína menn sem sýndu mikinn karakter og unnu góðan 4-2 sigur eftir að hafa lent tvisvar sinnum undir gegn Stjörnunni í kvöld.
,,Þetta var baráttuleikur tveggja öflugra liða og fyrsti leikur svona pínu aukahnútur í maganum og þetta þróaðist uppí mjög snarpan leik og þeir ná forystu tvisvar í leiknum og það er kannski sem situr eftir í leiknum er að hafa aldrei gefist upp og mætt þeim og ná að jafna og ná að klára sigur á þrautseigjunni."
Willum byrjaði með unga stráka á borð við Magnús Matthíasson og Arnór Traustason sem spiluðu mjög vel á meðan Magnús Þorsteinsson og Jóhann B. Guðmundsson byrjuðu á bekknum. Allir áttu stórann þátt í góðum sigri Keflavíkur í kvöld
,,Það er munar að vera með svona leikmenn á bekknum sem geta komið inn þegar völlurinn er farinn að taka í leikmenn aðeins farnir að þyngjast. Að fá Magga og Jóa þarna inná en ungu strákarnir Arnór, Maggi Matt og Einar Orri voru búnir að djöflast allan tímann. Við erum með sterka liðsheild og erum einhuga um það hópurinn og þess vegna var hjartað og bardagi í þessu sem þarf að vera til þess að vinna svona öflugt lið eins og Stjarnan er.
Nánar er rætt við Willum í sjónvarpinu hér að ofan.





















