„Þetta er kærkomið," sagði Tómas Joð Þorsteinsson, leikmaður Fylkis, eftir sigur liðsins í Grindavík í kvöld. Þetta var fyrsta mark Tómasar fyrir Fylki á Íslandsmóti.
„Þetta er búið að vera lengi að koma en er loksins komið. Maður verður að vera yfirvegaður, ég hugsaði bara um að klára þetta."
Fylkismenn léku í stutterma varatreyjum í vonda veðrinu í Grindavík. Harkan er þó ekki ástæðan fyrir því. „Ég held að við eigum ekkert annað, það er kreppa í gangi. Þetta venst," sagði Tómas en Fylkismenn sungu í klefanum til heiðurs Pape Mamadou Faye eftir sigurinn.
„Hans minning er mjög góð ennþá. Þetta er smá glens og gaman. Við sungum þetta líka þegar hann var hérna í liðinu."
Viðtalið við Tómas má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















