Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
   mið 27. júlí 2011 22:47
Alexander Freyr Tamimi
Ásmundur: Línuvörðurinn sagðist ekki hafa séð þetta
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis var svekktur með að hafa ekki fengið meira úr leik sinna manna gegn BÍ/Bolungarvík í kvöld, en honum lauk með 1-1 jafntefli. Hann var samt sem ánægður með að hafa náð að jafna metin í uppbótartíma.

„Það má segja að tilfinningarnar séu blendnar. Annars vegar er ég ósáttur við að fá ekki meira úr leiknum, ég vil meina að við höfum stjórnað leiknum að mestum hluta til, boltinn gekk á milli manna og það sem við lögðum upp með var að ganga þokkalega vel upp. Hins vegar er ég kannski ánægður með það að ná jöfnunarmarki hérna í lokin,“ sagði Ásmundur við Fótbolta.net eftir leikinn.

Eins og áður kom fram jöfnuðu Fjölnismenn metin í blálokin en þar var á ferð Marínó Þór Jakobsson með frábæru skoti. Ásmundur viðurkennir að það hafi verið jálvætt en vildi fá meira fyrir sinn snúð.

„Það er jákvætt en maður er ósáttur við bara eitt stig, en spilamennska strákanna var góð heilt yfir og ég var ánægður með þá. Þeir skora auðvitað gott mark og reyndar held ég að bæði lið séu ósátt með að fá bara eitt stig út úr þessu, það eru færi á báða bóga. Þannig að hugsanlega er niðurstaðan sanngjörn,“ sagði Ásmundur.

Vafasamt atvik átti sér stað í stöðunni 1-0 fyrir BÍ/Bolungarvík, en þá átti Kristinn Freyr Sigurðsson skot í slána og boltinn virtist fara yfir marklínuna. Ekkert mark var þó dæmt og var Ásmundur ósáttur með það.

„Ég vil meina að við höfum skorað löglegt mark þegar Kiddi á skot í slána og að mínu mati inn fyrir línuna, en maður fær ekki allt í þessu. Línuvörðurinn sagðist bara ekki hafa séð þetta, en ég held að hann hafi klárlega verið inni og þeir sem voru þarna í línu voru sammála því,“ sagði Ásmundur við Fótbolta.net.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
banner
banner