„Hún virkilega skrýtin. Hún er góð því við unnum í dag en það er virkilega fúlt að vera að fara frá félaginu,“ sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, varnarmaður ÍBV, þegar hann var spurður að því hvernig tilfinningin væri að hafa leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV.
Eiður er á leið til Örebro í Svíþjóð. „Við höfum ekki unnið leik eftir Þjóðhátíð í mörg ár svo þetta er kærkominn sigur,“ sagði Eiður eftir 3-1 útisigur í Árbænum í kvöld.
Eyjamenn æfðu vel um Verslunarmannahelgina og voru látnir blása í áfengismæli á æfingu síðasta laugardag. „Löggan mætti á æfingu hjá okkur á laugardaginn og lét okkur blása. Ég held að enginn hafi fallið og það er mjög gott,“ sagði Eiður sem var ánægður með spilamennskuna í kvöld.
„Þeir áttu bara aldrei sjens, við komum miklu betur stemmdir til leiks og ætluðum okkur að vinna þennan leik. Allt sem við lögðum upp með gekk.“
Getur ÍBV fyllt skarðið sem Eiður skilur eftir sig? „Ég held að Brynjar Gauti geti það. Hann átti virkilega góðan leik í dag. Hann er góður leikmaður svo það ætti ekki að vera neitt vandamál,“ sagði Eiður en Brynjar Gauti Guðjónsson lék sem djúpur miðjumaður hjá ÍBV í kvöld og stóð sig vel.
Eiður fer út til Svíþjóðar strax á morgun. „Ég flýg út átta í fyrramálið og kem mér fyrir. Tilhlökkunin er mikil, ég get ekki beðið eftir að byrja að æfa með þeim og sanna mig úti í Svíþjóð.“
Hægt er að sjá viðtalið við Eið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















