Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
   sun 07. ágúst 2011 20:05
Hörður Snævar Jónsson
Bjarni Jóhannsson: Smá hefnifílíngur í Baldvin
Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar var hæstánægður með 5-1 sigur sinna manna gegn Þórsurum þar sem þeir voru manni færri allan seinni hálfleikinn en skoruðu samt þrjú mörk.

„Þetta var flottur sigur og þrátt fyrir að við verðum fyrir ákveðnum áföllum í leiknum tökum við þetta alveg af gríðarlegum krafti og kláruðum þennan leik mjög vel,“ sagði Bjarni við Fótbolta.net.

„Við breyttum aðeins áherslunum í seinni hálfleik og leyfðum þeim að koma aðeins við boltann og gáfum ákveðin svæði eftir. Við fengum nánast engin færi á okkur nema kannski eina hættulega fyrirgjöf.“

Bjarni var ekki sáttur með rauða spjaldið sem Baldvin Sturluson fékk og það skiljanlega.

„Þetta var mjög grimm ákvörðun, mér fannst brotið á mínum manni og svo var einhver smá hefnifílingur í Baldvin, en mér fannst þetta frekar grimmt.“

Jesper Jensen fór sárþjáður af velli í seinni hálfleik vegna meiðsla og leit þetta ansi illa út. Ljóst er að það yrði mikið áfall fyrir Stjörnuna að missa þennan frábæra Dana.

„Þetta er eitthvað í hnénu á honum, það kemur í ljós tveggja daga. Að sjálfsögðu yrði áfall að missa hann til lengri tíma, hann er búinn að vera einn af betri leikmönnum hérna í mótinu hjá okkur.“

Viðtalið við Bjarna má sjá í heild sinni hér að ofan.
banner
banner