Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
   fim 11. ágúst 2011 21:51
Arnar Daði Arnarsson
Andri skoraði fernu gegn uppeldisfélaginu: Gaman að þessu
Andri skorar þriðja mark sitt í kvöld.
Andri skorar þriðja mark sitt í kvöld.
Mynd: Eyjólfur Garðarsson
,,Það er gaman að þessu, það er gaman að skora fjögur mörk [...] ég hefði nú alveg getað skora fleiri" sagði Andri Björn Sigurðsson leikmaður Gróttu sem gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu í kvöld 4-1 sigri Gróttu á ÍR, en Andri Björn er uppalinn ÍR-ingur en skipti yfir í Gróttu fyrir tímabilið frá ÍR.

,,Mér fannst við vera töluvert betri aðilinn allan leikinn, það var ekkert flóknara en það. Þeir fengu einhvern fimm mínútuna kafla í lokin sem þeir áttu nokkur færi annars vorum við mikið betri allan leikinn," sagði markaskorarinn, en með sigrinum komust Gróttumenn í 18 stig, þremur stigum fleiri en ÍR-ingar en baráttan framundan um að halda sér í deildinni verður mikil í síðustu umferðunum.

,,Mér finnst auðvitað leiðinlegt ef ÍR er að fara falla, en það er nóg af leikjum eftir en það er gaman að skora fjögur mörk. Ég var ekki að fá þann spiltíma sem ég sætti mig við hjá ÍR," sagði Andri aðspurður út í félagskiptin í Gróttu frá ÍR í vetur og svo að sjálfsögðu hvort það hefði nokkuð verið leiðinlegt að skora fjögur mörk gegn þeim.

Viðtalið við Andra Björn eftir leikinn í kvöld, er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner