,,Ég er svekktur að klára þetta ekki með sigri, ég vildi fá þrjú stigin ," sagði Hjörtur Hjartarson framherji ÍA í samtali við Fótbolta.net þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi deildinni á næstu leiktíð.
Lestu um leikinn: ÍR 1 - 1 ÍA
Skagamenn gerðu 1-1 jafntefli við ÍR í kvöld þar sem Hjörtur skoraði jöfnunarmarkið en hann klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
,,Þetta er tryggt og klárt og þá er markmiðinu náð. Hann er búinn að vera mér erfiður þessi markvörður, hann varði eins og brjálæðingur á móti mér uppá Skaga og líka núna. Hann bara fílfaði mig og varði þennan bolta auðveldlega."
Hjörtur sem er markahæsti maður ÍA í sumar býst ekki við að spila með liðinu í Pepsi deildinni að ári.
,,Ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar en ég tel nánast engar líkur á því. Ég er orðinn of gamall og er ekki í nógu góðu standi til að vera í úrvalsdeldinni nema ég taki mér frí frá vinnunni allt sumarið og það er erfitt því það er Evrópumót og Ólympíuleikar næsta sumar. Við skulum ekki reikna með því en ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar."
Nánar er rætt við Hjört í sjónvarpinu hér að ofan.





















