Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   sun 06. maí 2012 21:56
Magnús Már Einarsson
Rúnar Kristinsson: Féllum of mikið til baka
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er hundsvekktur að vera með 2-0 stöðu í síðari hálfleik og ná ekki að halda því. Við féllum of mikið til baka í síðari hálfleik og náðum ekki að nýta okkur þessa stöðu sem við vorum í nægilega vel og þeir skoruðu tvö mörk úr föstum leikatriðum,“ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR við Fótbolta.net eftir 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í kvöld.

,,Stjörnumenn voru grimmir og ákveðnir og léku mjög fast. Þetta var hörkuleikur. Þeir uppskáru laun erfiðisins með því að ná þessum tveimur mörkum. Ég er ósáttur við það en það gerast alltaf mistök á leiðinni og þannig koma mörkin. Við þurfum að reyna að bæta þetta næst."

Rhys Weston lék sinn fyrsta leik í vörn KR og Rúnar var ánægður með hans framlag.

,,Ég var mjög ánægður með hann, hann spilaði vel, talaði vel við varnarmenn og miðjumenn fyrir framan sig og stjórnaði þessu ágætlega ásamt Grétari.“

Emil Atlason fékk tækifæri á hægri kantinum og nýtti það með því að skora fyrsta mark leiksins.

,,Emil er hörkusterkur í loftinu og skoraði gott mark fyrir okkur. Ég er virkilega ánægður með hans framlag. Hann var orðinn þreyttur í síðari hálfleik og við þurftum að breyta aðeins til.“

Næsti leikur KR er strax á fimmtudag þegar liðið mætir ÍA í annarri umferðinni.

,,Við erum ekkert að dvelja við þetta. Það er heil umferð á fimmtudag. Það er næsti leikur og við mætum þangað og reynum að gera okkar besta. Skagamenn eru gríðarlega sterkir, það er erfitt að sækja þá heim á Skipaskaga og það er langt síðan að þeir léku leik þar í úrvalsdeild þannig að þetta verður örugglega rosalega gaman."
Slapp
banner
banner