,,Við lögðum það upp að vinna leikinn en Grindvíkingar voru ofan á í baráttunni um leið og leikurinn byrjaði og við urðum skelkaðir og áttum erfitt með að spila boltanum upp völlinn," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Vals eftir 2-0 tap gegn Grindavík í kvöld.
,,Við náum hrollinum úr okkur eftir að þeir voru búnir að þrýsta okkur aftarlega og skora markið. Við vinnum okkur úr því og fáum úrvalsfæri tvö í fyrri hálfleik þar sem við erum einn á móti markmanni á fimm metrunum og það á að vera mark. Það skiptir máli í þessum buisness."
,,Við erum undir í þeim hlutum sem við þurfum að vera góðir í þegar við erum að spila. Eins og til dæmis að byrja leikinn, vera grimmari og vinna návígin um boltann sem Grindvíkingar unnu í byrjun leiksins og náðu að setja þetta fyrsta mark sem skipti máli."
Guðjón Pétur Lýðsson var með betri mönnum Vals í fyrri hálfleik en var tekinn af velli í þeim síðari. Var eitthvað að hrjá hann?
,,Já, það var aðeins að hrjá hann ákveðnir hlutir sem við ræddum í hálfleik sem átti að fylgja eftir í seinnni hálfleik en var ekki verið að fylgja eftir. Hann kemur til baka."






















