Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   þri 10. júlí 2012 23:12
Elvar Geir Magnússon
Heimir Þorsteins: Hefði getað lamið aðstoðardómarann
Heimir Þorsteinsson.
Heimir Þorsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
„Þetta var verulega sárt," sagði Heimir Þorsteinsson, þjálfari Fjarðabyggðar, eftir 3-2 tap fyrir Aftureldingu í kvöld. Eftir að hafa verið 2-0 yfir fékk Fjarðabyggð á sig sigurmark í uppbótartíma.

„Við áttum að komast í 3-0 strax eftir að við skoruðum annað markið. Þetta var alveg hrikalega blóðugt maður."

Heimir var allt annað en sáttur við aukaspyrnudóm aðstoðardómarans Hallgríms Viðars Arnarssonar sem flaggaði aukaspyrnuna í uppbótartíma sem Afturelding skoraði upp úr.

„Ég er mjög ósáttur við hann því menn geta ekki fengið aukaspyrnu ef það er engin snerting. Það var engin snerting. Aðstoðardómarinn var beint ofan í þessu," sagði Heimir sem vildi ekki kenna dómurunum um tapið

„Ég hefði getað lamið þennan aðstoðardómara... en ég geri ekki svoleiðis, ég er góður strákur."

Viðtalið við Heimi má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar hann meðal annars um botnbaráttuna framundan og þann liðsstyrk sem Fjarðabyggð ætlar að ná sér í í félagaskiptaglugganum sem opnar í næstu viku.
Slapp
banner
banner