
„Mér leið bara ágætlega. Ég er allavegana mjög þreytt núna en við erum sátt. Það er aldrei rólegt að gera á móti Breiðablik. Þær eru sjúklega hraðar þarna fram á við og með gullfætur sem geta sett‘ann þannig að það var nóg um að vera í dag,“ sagði Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markvörður Þórs/KA, í samtali við Fótbolta.net eftir 3-1 sigur á bikarmeisturum Breiðabliks í Borgunarbikarnum. Bryndís Lára átti enn einn stjörnuleikinn og hélt sínu liði inni í leiknum með góðum vörslum í upphafi leiks.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 3 Þór/KA
„Eftir tvær vörslur hjá mér þá datt maður svolítið í gírinn. Það var mjög gott fyrir mig persónulega að byrja svona þar sem við vorum ekki alveg að finna taktinn fyrstu mínúturnar.“
Þór/KA skapaði sér ekki mörg marktækifæri í leiknum en það virtist ekki skipta máli þar sem Sandra Mayor nýtti alla sénsa, stóra og smáa, sem hún fékk í kringum Blikamarkið og skoraði þrennu.
Bryndís Lára vill meina að lífræni kaffibollinn sem hún splæsti á borgarstjórann hafi haft sitt að segja.
„Hún er geggjuð. Ég keypti einmitt fyrir hana kaffibolla í dag sem kostaði þúsund krónur! Þannig að það var eins gott að hún vann fyrir þessum bolla. Þetta var eitthvað organic drasl sem var rándýrt. En ég sé ekki eftir þessum pening,“ sagði Bryndís Lára létt en óskamótherjar hennar í 8-liða úrslitum eru fyrrum samherjar í ÍBV.
„Ég vil fá ÍBV. Það væri gaman að hitta þær. Ég hitti þær svo sjaldan. Það væri gott að nota ferðina.“
Við spurðum Bryndísi Láru að lokum út í landsliðshópinn og hvort að hún vildi ekki vera þar enda búin að vera frábær í sumar. Markvörðurinn var ekki tilbúin til að tjá sig um máið að svo stöddu að öðru leyti en að auðvitað vildi hún vera í hópnum.
„Að sjálfsögðu langar manni það en ég ætla bara ekkert að tjá mig neitt um það. Ég þyfti tvöfaldan Kastljós þátt ef ég ætti eitthvað að tjá mig um það. Þannig að við skulum bara ekki gera það í dag.“
Nánar er rætt við Bryndísi Láru í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir