Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   lau 10. ágúst 2019 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Bayern sagt í viðræðum við Juventus um Mandzukic
Mario Mandzukic er á leið frá Juventus
Mario Mandzukic er á leið frá Juventus
Mynd: Getty Images
Það er útlit fyrir það að Mario Mandzukic yfirgefi Juventus í þessum glugga en þýska félagið Bayern München er í viðræðum við ítalska félagið.

Mandzukic hafnaði tækifærinu að fara til Manchester United undir lok enska gluggans en Juventus vill losa sig við hann áður en Evrópuglugginn lokar.

Bayern hefur verið að leita að sóknarsinnuðum leikmanni en félagið er hætt að eltast við Leroy Sane, leikmann Manchester City, eftir að hann meiddist illa gegn Liverpool í samfélagsskildinum.

Bayern vill fá Mandzukic á láni út tímabilið með möguleika á að kaupa hann en félagið er einnig að ræða við Inter um að fá Ivan Perisic á svipuðum díl.

Mandzukic þekkir vel til hjá Bayern en hann lék með liðinu frá 2012 til 2014.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner