sun 11. ágúst 2019 13:30
Brynjar Ingi Erluson
Lukaku skoraði fjögur í fyrsta leik með Inter
Romelu Lukaku var heitur í fyrsta leik
Romelu Lukaku var heitur í fyrsta leik
Mynd: Heimasíða Inter
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku skoraði fjögur mörk í fyrsta leik með ítalska félaginu Inter er það vann Virtus Bergamo 8-0 í æfingaleik í dag.

Lukaku gekk til liðs við Inter frá Manchester United á dögunum en hann fékk treyju númer 9.

Mauro Icardi var áður með það númer en hann er líklega á förum í þessum mánuði.

Lukaku var ekki lengi að reima á sig markaskóna en hann skoraði fjögur mörk fyrir Inter í dag gegn Virtus Bergamo.

Matias Vecino og Sebastian Esposito skoruðu þá báðir tvö mörk en Inter á fyrsta leik gegn Lecce þann 26. ágúst í Seríu A.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner