Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. mars 2009 15:57
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur Grindavíkurbæjar 
Nýtt knattspyrnuhús opnað í Grindavík
Frá vígslunni í gær.
Frá vígslunni í gær.
Mynd: Grindavíkurbær
Nýtt knattspyrnuhús var vígt í Grindavík í gær og í tilefni af því komu nokkuð hundruð gestir á vígsluhátíðina. Húsið er 50 x 70 metrar með staðsteyptum veggjum og stálgrindarþaki.

Húsið gjörbyltir allri aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í Grindavík og býður upp á æfingaaðstöðu fyrir fleiri íþróttagreinar og almenningsíþróttir. Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Grindarinnar hf, sem sá um smíði hússins, afhenti Garðari Páli Vignissyni, forseta bæjarstjórnar, lyklavöldin að húsinu.

Einnig afhenti Magnús unglingaráði knattspyrnudeildar 100 nýja bolta fyrir yngri flokkana af þessu tilefni og tók Rúnar Sigurjónsson, formaður unglingaráðs við þeim.

Efnt var til samkeppni um nafn á húsinu og tilkynnti Garðar við vígsluna að nafnið Hópið varð fyrir valinu en það hefur skírskotun til sögu Grindavíkur. Þá vígði Garðar formlega húsið með því að taka vítaspyrnu af miklu öryggi.

Friðrik Einarsson, stjórnarmaður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, flutti ávarp og þakkaði Grindavíkurbæ fyrir að standa vel að uppbyggingu íþróttamannvirkja eins og Hópið bæri vitni um, að hlúa vel að íþróttaiðkun barna og unglinga væri besta forvörn sem völ væri á.

Gylfi Orrason, varaformaður KSÍ, flutti einnig ávarp og óskaði Grindavíkingum innilega til hamingju með þetta glæsilega hús. Þá afhenti hann knattspyrnudeild UMFG bolta að gjöf fyrir eldri iðkendur og tók Þorsteinn Gunnarsson, formaður deildarinnar, við þeim. Þá blessaði séra Sigfús B. Ingvason húsið.

Við setninguna var sýnt fram á notagildi hússins. Þar voru krakkar í fótbolta, eldri borgarar sýndu leikfimi, Golfklúbbur Grindavíkur bauð kylfingum upp á taka æfingahögg með því að slá bolta í net og stangveiðimenn æfðu fluguköst af miklum móð.

Gunnlaugur Hreinsson, formaður UMFG, tók fyrstu skóflustunguna að nýja fjölnota íþróttahúsinu þann 27. apríl 2007 en starfsemi í húsinu hófst í haust þótt ekki væri allt tilbúið inni fyrr en nú.
Athugasemdir
banner
banner