Ægir Jarl Jónasson var með tvo leiki rétta þegar hann spáði í úrslit áttundu umferðar í Lengjudeildinni.
Þórður Gunnar Hafþórsson, leikmaður Fylkis, spáir í leiki níundu umferðar. Allir leikirnir fara fram í dag.
Þórður Gunnar Hafþórsson, leikmaður Fylkis, spáir í leiki níundu umferðar. Allir leikirnir fara fram í dag.
Þór 0 - 4 Vestri
Spái mínum mönnum í Vestra 0-4 sigri þar sem Guðmundur Arnar setur 2 með hægri og leggur upp hin 2 á Pétur Bjarna og Viktor Júll.
ÍBV 3 - 2 Selfoss
ÍBV vinnur frábæran 3-2 sigur á Selfossi í geggjuðum leik, Gary Martin og Tokic skora mörk Selfossar.
Víkingur Ó 1 - 0 Þróttur
1-0 Víkingur sækir sinn fyrsta sigur í sumar. Líklegast hundleiðinlegur leikur.
Fram 1 - 0 Grindavík
Fram halda sínu skriði áfram og vinna 1-0, Matti Krókur sólar upp völlinn og skorar winnerinn í uppbótartíma.
Fjölnir 2 - 1 Kórdrengir
Fjölnir vinna sterkan 2-1 sigur á Kórdrengjum þar sem Jóhann Árni setur 2 úr aukaspyrnu, Hákon Ingi minnkar muninn fyrir Kórdrengi í lokin.
Afturelding 2 - 1 Grótta
2-1 Arnór Gauti tekur þennan leik í sínar hendur og setur bæði mörk Aftureldingar, Pétur Theódór getur hinsvegar ekki hætt að skora og setur eitt.
Fyrri spámenn:
Adam Ægir - 5 réttir
Axel Óskar - 3 réttir
Stubbur - 3 réttir
Úlfur Blandon - 3 réttir
Rabbi - 2 réttir
Rúnar Þór - 2 réttir
Ægir Jarl - 2 réttir
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir