„Mér líður bara ólýsanlega. Þetta er allra besta fótboltatilfinning sem ég hef upplifað hingað til. Það að liðið skuli komast strax aftur upp í Bestu deildina eftir ár hérna í Lengjunni og það er bara geggjað." voru fyrstu viðbrögð Ómars Inga Guðmundssonar þjálfara HK eftir 3-1 sigurinn á Fjölni og sætið í Bestu deild karla að ári.
Lestu um leikinn: HK 3 - 1 Fjölnir
„Það var markmiðið frá fyrsta degi áður en við byrjuðum að æfa og það voru allir á því allan tíman og ég held að við höfum bara sýnt það á löngum köflum í sumar að það sást nokkuð augljóslega hvað ætluðum okkur."
Ómar Ingi Guðmundsson tók við liðinu af Brynjari Birni Gunnarssyni og er að koma HK liðinu upp í Bestu deildina að ári og var Ómar spurður hvað hafi ráðið þessu að liðið væri á leiðinni upp.
„Brynjar á ótrúlega stóran hluta í þessu. Hann var mestan hluta tímabilsins sem aðalþjálfari liðsins og hann var alveg líka staðráðin í því um leið og tímabilið var búið í fyrra að þetta yrði endirinn."
„Við erum með fullt af gæðum í liðinu, reynslu og leikmenn sem taka ungum leikmönnum mjög vel og um leið og við náðum að átta okkur á því eftir fyrstu umferðirnar að þetta yrði erfitt og þá fórum við að leggja okkur fram ásamt því að sýna gæðin þá fannst mér við nokkuð verðskuldað vera á leiðinni upp úr deildinni."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan