Óli Jó gaf ekki kost á viðtölum eftir leik
„Þetta var frábært, við erum ánægðir með þetta og eftir brösuga byrjun fannst mér þetta aldrei vera spurning."
Sagði Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Vals eftir sigur á Fjölni. Ólafur Jóhannesson aðalþjálfari Vals gaf ekki kost á viðtali eftir leik.
Sagði Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Vals eftir sigur á Fjölni. Ólafur Jóhannesson aðalþjálfari Vals gaf ekki kost á viðtali eftir leik.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 2 Valur
„Manni líður alltaf vel eftir sigurleiki, hvort sem við erum komnir á beinu brautina eða ekki, þetta er stigasöfnunin í byrjun og við viljum vinna alla leiki og við förum í alla leiki til að ná í þrjú punkta."
Arnar Sveinn Geirsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Valsmenn í sumar og átti góðan leik.
„Hann stóð sig mjög vel, engin spurning"
Næsti leikur Valsmanna er á heimavelli gegn KA 9. júní.
„KA er með hörkulið. Þeir áttu greinilega frábæran leik í gær og vinna Víkinga 4-1 og koma fullir sjálfstrausts í bæinn. Við þurfum að eiga okkar allra besta leik til að vinna þá."
Valur héldu hreinu í fyrsta skipti hreinu frá því í annarri umferð gegn Víking Reykjavík.
„Við vorum mjög ánægðir með það, það voru bara allir á tánum og klárir á sínu. Þegar það gerist þá erum við í góðum gír."
Athugasemdir