PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
banner
   fös 05. júní 2026 22:35
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Fimmti sigurinn í röð - Húnvetningar skoruðu sjö
Haukar á flugi
Haukar á flugi
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Það fóru tveir leikir fram í 2. deild karla í kvöld og voru tíu mörk skoruð.

Lestu um leikinn: Hvíti riddarinn 0 -  2 Haukar

Pablo Punyed og Ólafur Darri Sigurjónsson sáu um markaskorunina er topplið Hauka lagði Hvíta riddarann að velli í Mosfellsbæ.

Mörkin komu bæði snemma leiks og fundu Mosfellingar engar lausnir gegn öflugum Hafnfirðingum. Haukar eiga 15 stig eftir 6 umferðir og situr Hvíti riddarinn eftir með 7 stig.

Kormákur/Hvöt skoraði þá sjö mörk í stórsigri gegn Magna frá Grenivík.

Pere Belmonte var atkvæðamestur með tvennu og skiptu aðrir leikmenn mörkunum jafnt sín á milli. Lokatölur urðu 7-1 og eru Húnvetningar komnir með 10 stig eftir 6 umferðir.

Magni er aðeins með 4 stig.

Hvíti riddarinn 0 - 2 Haukar
0-1 Pablo Oshan Punyed Dubon ('8 )
0-2 Ólafur Darri Sigurjónsson ('25 )

Kormákur/Hvöt 7 - 1 Magni
1-0 Pere Belmonte ('6 )
2-0 Papa Diounkou Tecagne ('11 )
2-1 Guðni Sigþórsson ('22 )
3-1 Bilal Kamal ('37 )
4-1 Pere Belmonte ('38 )
5-1 Fabian Straudi ('49 )
6-1 Snorri Steinn Árnason ('67 )
7-1 Haukur Ingi Ólafsson ('90 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 4 0 1 17 - 6 +11 12
2.    Kári 5 3 1 1 16 - 7 +9 10
3.    Fjölnir 5 3 0 2 15 - 10 +5 9
4.    Selfoss 5 2 2 1 10 - 9 +1 8
5.    Kormákur/Hvöt 5 2 1 2 8 - 5 +3 7
6.    Hvíti riddarinn 5 1 4 0 7 - 5 +2 7
7.    Þróttur V. 5 2 1 2 6 - 7 -1 7
8.    KFA 5 2 0 3 12 - 11 +1 6
9.    KFG 5 2 0 3 9 - 15 -6 6
10.    Víkingur Ó. 5 1 1 3 7 - 14 -7 4
11.    Dalvík/Reynir 5 1 1 3 5 - 12 -7 4
12.    Magni 5 1 1 3 5 - 16 -11 4
Slapp
banner
banner