Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
   sun 07. apríl 2024 22:08
Anton Freyr Jónsson
Arnar Grétars: Stjórnuðum leiknum frá upphafi til enda
Arnar Grétarsson þjálfari Vals
Arnar Grétarsson þjálfari Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst frammistaðan heilt yfir flott. Mér fannst við koma sterkir inn í leikinn og stjórnuðum honum frá upphafi til enda. Það var svona aðeins á síðustu mínútunum sem þeir svona aðeins að halda boltanum og þrýsta okkur niður en svona heilt yfir frammistaðan hvernig við héldum boltnaum, ég held að fólk geri sig ekki grein fyrir hvað þetta eru erfiðar aðstæður." sagði Arnar Grétarsson þjálfari Vals eftir sigur á ÍA í fyrstu umferð Bestu deildar karla.


Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 ÍA

„Það var skítakuldi, vindur og völlurinn þurr þannig það er mun erfiðara að spila fótbolta við þessar aðstæður heldur en hefbundnar aðstæður sem við spilum við en en og aftur ánægður með vinnuframlagið og hvernig við vorum að láta boltann rúlla og sköpuðum nóg af færum og það var kannski svona það eina sem ég hefði viljað að vera búin að gera útum leikinn fyrr."

Valsmenn fóru með 1-0 forskot inn í hálfleikinn og hefðu mörkn hreinlega getað orðið fleiri en Valsmenn fengu nóg af færum og hefði forskotið geta verið stærra inn í hálfleikinn

„Upplifunin var slík. Mér fannst við skapa nóg til að skora eitt mark og mér fannst það halda áfram í seinni þar sem við fengum nóg af færum. Ég man nú bara eftir því að Gylfi fékk deddara og hann er nú ekki vanur að klikka, við fengum helling af færum sem er bara mjög jákvætt en kannski jákvæðara er að þeir sköpuðu sér mjög lítið, þeir voru lítið með boltann."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Arnar með annars um Gylfa Þór.
Slapp
banner
banner