Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   fim 07. nóvember 2013 16:15
Magnús Már Einarsson
Jói vallarstjóri: Grasið verður grænt um jólin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta er sennilega stærsti leikurinn síðan Frakkar voru 1998 og ævintýrið var gegn Ítalíu þegar 20 þúsund mættust," sagði Jóhann Kristinsson vallarstjóri á Laugardalsvelli við Fótbolta.net í dag en undirbúningur er í fullum gangi á vellinum fyrir umspilsleik Íslands og Króatíu eftir rúma viku.

,,Hann er í toppstandi núna meðan það er ófrosið. Hann er ekki verri núna en fyrir mánuði. Það sem verður alltaf vandamálið hjá okkur er veðrið, vindurinn og frostið. Það er áhættupóstarnir í þessu öllu."

Á morgun verður hitadúkur lagður yfir völlinn en búið er að spreyja járni á grasið til að það verði grænna.

,,Það framkallar græna litin í grasinu. Hann var farinn að missa lit og þetta er þekkt aðferð til að láta grasið njóta sín betur, allt gert fyrir sjónvarp. Grasið verður grænt á föstudaginn og líka um jólin," sagði Jóhann léttur.

,,Við höfum gert þetta áður og þetta er alþekkt. Þetta er alþekkt í þessum heimi hjá þeim sem spila fótbolta utan þess tíma sem er gróand. Þar er þetta gert til að fá grænar flatir."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner