Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   lau 08. mars 2025 05:55
Elvar Geir Magnússon
U17 kvenna hefur milliriðilinn gegn Belgíu í dag
Kvenaboltinn
Mynd: KSÍ
U17 landslið kvenna hefur leik í dag í seinni umferð undankeppni EM 2025 þegar liðið mætir Belgíu.

Leikurinn fer fram á Pinatar Arena á Spáni og hefst hann kl. 17:00 að íslenskum tíma. Í riðlinum eru einnig Úkraína og heimakonur í Spáni.

Allir leikir liðsins í riðlinum verða í beinni útsendingu á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans. Leikið verður gegn Spáni á þriðjudaginn klukkan 11 og svo Úkraínu næsta föstudag klukkan 14.

Efsta lið hvers milliriðils fer í úrslitakeppnina, sem leikin verður í Færeyjum 4.-17. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner