Sómalska dómaranum Omar Artan var meinað um inngöngu í Bandaríkin en hann átti að vera einn af dómurunum á heimsmeistaramótinu.
Artan var í fyrra valinn dómari ársins í Afríku en hann fékk ekki inngöngu í Bandaríkin þegar hann var lentur á flugvellinum í Miami. Hann flaug þaðan til Tyrklands.
Artan var í fyrra valinn dómari ársins í Afríku en hann fékk ekki inngöngu í Bandaríkin þegar hann var lentur á flugvellinum í Miami. Hann flaug þaðan til Tyrklands.
Útlendingaeftirlit Bandaríkjanna hefur ekki gefið neina skýringu á því að Artan fékk ekki inngöngu en Sómalía er eitt af þeim löndum þar sem strangar reglur um landvistarleyfi gilda í Bandaríkjunum.
Artan varð alþjóðlegur FIFA dómari 2018 g hefur meðal annars dæmt í Afríkukeppninni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


