Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Nýliðinn Linda Líf: Maður er valin af ástæðu
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
   fös 08. september 2023 22:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lúxemborg
Alfreð: Getum ekki leitað að afsökunum
Icelandair
Alfreð svekktur í leiknum í kvöld.
Alfreð svekktur í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

„Þetta er fyrst og fremst gríðarlegt svekkelsi," sagði Alfreð Finnbogason framherji Íslands eftir 3 - 1 tap úti gegn Lúxemborg í undankeppni EM 2024 í kvöld.


Lestu um leikinn: Lúxemborg 3 -  1 Ísland

„Við ætluðum að koma okkur aftur í baráttuna með þessum sigri. Við vitum að það eru allir að stela stigum af hvorum öðrum en ef við vinnum enga leiki þá erum við að stimpla okkur út úr baráttunni. Við verðum að halda áfram að vera jákvæðir, það eru þrír heimaleikir framundan og við getum komið okkur í ágætis stöðu með því að byrja að vinna á mánudaginn," sagði Alfreð en gerir hann sér enn vonir um að geta náð öðru af tveimur efstu sætunum í riðlinum sem gefa sæti á EM?

„Já auðvitað, en við erum svolítið langt frá því núna til að vera eitthvað að pæla í því. Þetta er ekki byrjunin sem við óskuðum okkur stigalega séð. Við erum með alltof fá stig. Það er staðreyndin og við getum ekki leitað að afsökunum. Staðan er svona og við þurfum að svara fyrir það á mánudaginn," sagði Alfreð en liðið mætir Bosníu/Herzegóvínu á Laugardalsvelli á mánudagskvöldið.

Hvernig leið þér á vellinum, fannst þér þið vera í mótlæti? „Já, auðvitað er fullt af smá ákvörðunum sem falla ekki með okkur og að byrja leikinn svona er ekki ideal. En við höfum 90 mínútur til að jafna leikinn. Leikurinn er ekkert búinn og mér fannst við taka völdin á leiknum og nýta okkur að þeir eru að spila aftast sem þeir eru ekki frábærir í. Við áttum að refsa þeim meira fyrir það og við fengum færi, ég þar á meðal, og áttum bara að gera betur til að koma okkur inn í leikinn. Það er mest svekkjandi að hafa ekki jafnað í 1-1 og gert þetta að alvöru leik."

„Í stöðunni 2-0 og manni færri var þetta orðið mjög erfitt en á sama tíma gáfumst við ekki upp. Þetta var gríðarlega erfitt og við gerðum þetta erfitt."

Upplifðir þú það þannig að ef það væri snerting þá væri alltaf dæmt brot?

„Já þetta var ótrúlegt, sérstaklega fyrsta spjaldið hjá Herði. Það er klárlega brotið á mér á miðjunni og í annað skiptið í röð. Hann fær gult spjald og seinna gula í seinni hálfleik svo þessir hlutir telja. Þetta var mjög skrítin frammistaða hjá dómaranum en þegar þú spilar sjálfur svona er ekki hægt að kenna honum beint um. Hann hjálpaði ekki en þetta var ótrúlega pirrandi ofan í allt hitt."

3 - 1 tap gegn Lúxemborg, horfir þú á það sem lágpunkt á landsliðsferlinum?

„Ég myndi ekki segja það, Lúxemborg er ekki það sama og fyrir 5 eða 10 árum. Við gerum samt þá kröfu að vinna á móti Lúxemborg. Þetta er ekki þessi smáþjóð sem þetta var fyrir nokkrum árum."


Slapp
banner