,,Því miður höndluðu þeir engan veginn þennan leik. Fjölnismenn eru með sterkt lið og komu miklu tilbúnari í öllum tæklingum og návígum," sagði Pálmi Ingólfsson aðstoðarþjálfari Grindavíkur eftir 0-4 tap heima gegn Fjölni í toppbaráttu 1. deildar í kvöld.
Lið Fjölnis skoraði fjögur mörk og tók toppsætið af Grindavík. Þeir voru mjög hraðir upp völlinn í kvöld.
,,Þetta snýst ekkert um hraða leikmanna heldur fyrst og fremst um hugarfar. Hvernig menn eiga að staðsetja sig og svo framvegis. Ég held að það hafi fyrst og fremst verið hugarfarið. Ekki að við séum með lélegri leikmenn," sagði Pálmi en er pressa á leikmönnum Grindavíkur?
,,Það er auðvitað pressa á öllum liðum sem eru að berjast um þetta sæti í efstu deild og ég held að það sé ekki síður á Grindavík en öðrum liðum. Við náðum ekki að höndla hana núna, ef hún er fyrir hendi, því sjálfstraustið var ekki í lagi."
Grindvík er í 2-4 sæti með Víkingi og Haukum, stigi á eftir toppliði Fjölnis eftir daginn í dag.
,,Við erum algjörlega í bullandi séns og þetta snýst bara um að strákarnir sem spila þessa leiki hafi jafnmikla trú á þessu liði og við þjálfarnir höfum. Það er klárt að við höfum trú á þeim og ef við höfum áhuga á að klára þetta þá gerum við það, það er engin spurning að við ætlum að fara upp."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan en þar segir hann óáættanlegt að tapa 4-0.
,,Algjörlega óásættanlegt. Við eigum ekki að tapa 4-0 fyrir Fjölnisliðinu þó það sé mjög gott, tek ekkert af því, mjög gott lið. Þetta er alltof stór sigur."
Athugasemdir





















