Eiður Smári Guðjohnsen segir að leikmenn íslenska landsliðsins verði að passa að fara ekki fram úr sjálfum sér fyrir komandi leiki gegn Kýpur og Noregi í undankeppni HM.
Ísland er í 2. sæti fyrir komandi leiki og á góða möguleika á sæti í umspili fyrir HM á næsta ári.
Ísland er í 2. sæti fyrir komandi leiki og á góða möguleika á sæti í umspili fyrir HM á næsta ári.
,,Ég held að það sé hlutverk okkar allra að fara ekki fram úr okkur. Það eru ennþá tveir mikilvægir leikir eftir og við höfum ekkert í höndunum ennþá. Við einbeitum okkur að þessum leik. Við vitum að það er mikilvægt skref og næsti leikur er alltaf mikilvægastur," sagði Eiður við Fótbolta.net í dag.
,,Við erum búnir að koma okkur í þessa stöðu og við eigum ekki að vera smeykir eða hræddir við það sem er framundan."
Eiður var úti í kuldanum hjá Club Brugge í byrjun tímabils en eftir þjálfaraskipti hefur hann komið við sögu í síðustu tveimur leikjum.
,,Ég er nokkuð sáttur. Ég hefði auðvitað vilja spila meira í millitíðinni en ég er nokkuð ánægður með standið á mér. Ég kem í svipuðu standi og í síðustu leiki," sagði Eiður en hann segist finna fyrir meðbyr með íslenska landsliðinu .
,,Það er eitthvað sem við höfum skapað okkur sjálfir. Við höfum fengið fólkið með okkur og stuðningurinn hefur verið frábær. Að spila fyrir framan fullan Laugardalsvöll er alltaf skemmtilegra en að spila fyrir framan hálffullan völl."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir





















