,,Þetta var strembinn leikur," sagði Sigurður Donys Sigurðsson fyrirliði Einherja eftir sigur liðsins gegn KFG. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í þriðju deild að ári.
,,Við lentum í mótspyrnu í upphafi. Fengum á okkur frekar ódýrt víti í upphafi en komum sterkir til baka. Það var ekki í fyrsta skipti í sumar og við sýndum bara hvað býr í okkar liði. Ætlunin var að koma hingað og spila okkar leik. Þegar við spilum okkar leik erum við mjög góðir svo það kom aldrei til greina að liggja til baka."
,,Ég hef mikla trú að við höldum áfram saman. Ég get ekkert svarað hvar ég verð næsta sumar, strákarnir hérna segja að ég verði áfram. Ætli ég ræði ekki við Víglund þjálfara og stjórnina og framhaldið skýrist af því."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir























