„Mér fannst hann góður og við fengum rosalega mikið út úr leiknum," sagði Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins, fyrir æfingu í dag.
Hann var þar að ræða um æfingaleik sem liðið spilaði gegn Finnlandi í síðustu viku. Sá leikur endaði með 2-3 dramatískum sigri Íslands. Strákarnir sýndu mikinn karakter að klára leikinn.
Hann var þar að ræða um æfingaleik sem liðið spilaði gegn Finnlandi í síðustu viku. Sá leikur endaði með 2-3 dramatískum sigri Íslands. Strákarnir sýndu mikinn karakter að klára leikinn.
„Við sýndum gæði og gott hugarfar. Ég var ánægður með þennan leik og að þetta hafi verið síðasta verkefni fyrir riðlakeppnina er mjög sterkt."
„Þetta er annar leikurinn í röð þar sem við erum að klára leik á 90. mínútu. Þetta sýnir það sem við erum að standa fyrir. Við erum Ísland og við erum með sterkt hugarfar."
Mjög spennandi hópur
Eins og áður kemur fram þá er ný undankeppni að fara af stað en hópurinn er búinn að breytast mikið frá síðustu undankeppni eins og gefur að skilja. Það eru margir leikmenn úr U19 landsliðinu búnir að stíga upp en það landslið fór í lokakeppni EM í sumar.
„Þetta er mjög spennandi hópur. Við erum með góða leikmenn og efnilega leikmenn. Þeir eru búnir að vinna mjög mikið í því að búa til góða liðsheild. Það verður spennandi að horfa á okkur spila á morgun. Ég hlakka til að horfa á okkur spila."
Það hafa líka leikmenn sem spilað hafa með U21 landsliðinu stigið upp í A-landslið. Orri Steinn Óskarsson spilaði sinn fyrsta leik með A-landsliðinu síðastliðið föstudagskvöld og Kristian Nökkvi Hlynsson er einnig í þeim hóp.
„Það var frábært, það er alltaf frábært þegar við sjáum leikmenn stíga upp úr yngri landsliðunum í A-landsliðið. Það er alltaf lokamarkmiðið að búa til þannig umhverfi í yngri landsliðunum að þeir koma sem mest tilbúnir í A-landsliðið. Sama hver það er, þá er það ánægjuefni þegar menn stíga upp."
Fyrsti leikur á móti Tékklandi
Á morgun hefst ný undankeppni þegar strákarnir mæta Tékklandi, liðinu sem þeir töpuðu fyrir í umspilinu í fyrra.
„Bæði liðin eru ný. Hitt sem var bara hnífjafnt, en það er búið. Það er þetta lið sem gildir. Það sem gerðist hjá liðinu á undan skiptir engu máli núna. En við teljum okkur þekkja Tékkana vel. Þetta verður spennandi og skemmtilegur leikur sem við erum að fara að spila á morgun. Við þurfum að vera klárir."
„Við erum að horfa í það að leikmennirnir sem eru framarlega á vellinum voru að spila á móti okkur síðast. Það eru meiri breytingar aftar á vellinum. Við erum held ég að fara að sjá mjög svipaða uppskrift og var. Þeir eru þéttir varnarlega og grimmir sóknarlega. Þetta eru góðir einstaklingar að spila á háu stigi í Tékklandi. Þetta er gott lið að koma á Víkingsvöll á morgun."
Davíð Snorri telur að möguleikarnir séu góðir. Markmiðið er að fara út úr hverjum glugga sem sigurvegarar.
„Það er langt í lokakeppnina, hún er 2025. Við eigum okkur þann draum að fara á EM. Við verðum að koma út sem sigurvegarar í hvert sinn og við verðum að vera betri í hvert sinn. Við verðum að spila eins og Íslendingar, stoltir og með sterkt hugarfar.






















